Fyrstu tölur í Indíana og Kentucky benda til þess að kosningaspár gangi eftir.  Í Kentucky virðast repúblíkanar hafa unnið sæti í öldungardeildinni af demókrötum en frambjóðandi repúblíkana er Rand Paul sem var studdur af teboðshreyfingunni.

Samkvæmt núverandi tölum er sigur hans enn stærri en kannanir gerðu ráð fyrir, en langt er í að endanleg úrslit liggja fyrir.