Aðalsteinn Rúnarsson, sérfræðingur hjá EJS, náði nýlega þeim áfanga að verða fyrsti Íslendingurinn til að fá prófskírteini fyrir sérþekkingu á sviði samskiptalausna (Unified Communications) en Aðalsteini bauðst að taka þátt í sérstöku námskeiði á því sviði sem haldið var í Danmörku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Microsoft á Íslandi en námskeiðið var eingöngu í boði fyrir þá sem hvað lengst eru komnir í þekkingu á samskiptalausnum Microsoft og lauk því með prófi sem er áfangasigur í þekkingu á Microsoft Unified Communications.

„Miklar kröfur eru gerðar til sérfræðinga sem sækja nám á þessu stigi hjá Microsoft. Bæði þurfa þeir að hafa talsverða starfsreynslu á viðkomandi sviði og einnig að hafa lokið mörgum prófum á fyrri stigum Microsoft-námsins,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að Aðalsteini var boðið til námskeiðsins vegna fyrri reynslu hans á Microsoft-samskiptatækni og í tengslum við innleiðingu EJS á Office Communications Server 2007 R2, nýjustu lausn Microsoft á þessu sviði.

Í prófgráðu Aðalsteins felst sérþekking á Microsoft Office Communications Server (OCS). Það er samskiptalausn sem tvinnar saman símtækni og tölvusamskipti á borð við tölvupóst og spjallforrit og veitir þannig starfsfólki betri yfirsýn og stjórn á samskiptamáta sínum heldur en hefðbundið fyrirkomulag þar sem síma- og tölvusamskipti eru aðskilin.

Aðalsteinn segir að námið sem var undanfari prófskírteinisins muni reynast vel í komandi verkefnum á þessu sviði.

„Þetta var krefjandi námskeið þar sem lögð var jöfn áhersla á kennslu og verkefnavinnu sem lauk svo með prófi,“ segir Aðalsteinn í tilkynningunni.

„Ég bjó að góðri reynslu í innleiðingu OCS í starfi mínu hjá EJS og því hafðist þetta allt saman nokkuð örugglega. Það er auðvitað gaman að vera sá fyrsti hér heima til að ná þessum áfanga og sér í lagi á þessu sviði sem greinilega er vaxandi þessa dagana.“