Gæludýraeigendum verður heimilað frá og með deginum í dag að taka gæludýrin sín með í Strætó að því er stjórnarformaður Strætó og þingmaðurinn Bryndís Haraldsdóttir greinir frá á Facebook síðu sinni.

Verkefnið mun verða tilraunaverkefni til eins árs en svo stjórn Strætó fengi að taka þessa ákvörðun þurfti til undanþágu frá umhverfisráðherra. Bryndís segir í samtali við Viðskiptablaðið að einhugur hafi verið um málið í stjórn Strætó og að ákvörðunin hafi verið tekin eftir að skoðað hafði verið hvernig reglunum væri háttað í nágrannalöndunum.