Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst í dag og stendur til 15. mars. Varpið hófst fremur seint í ár og því hefur Umhverfisstofnun ákveðið að seinka upphafi veiðinnar á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs til 1. september.
Umhverfisstofnun segir að algengt sé að veiðimenn bíði með gæsaveiði þar til í september ekki síst í ljósi þess að þá er einnig heimilt að hefja veiðar á þeim andategundum sem veiddar eru. Fjöldi veiðimanna fer hinsvegar til veiða fyrstu dagana, sérstaklega þeir sem veiða heiðagæsir.
Grágæs og heiðagæs hefur fjölgað á undanförnum árum samkvæmt talningum og hækkandi veiðitölur endurspegla gott ástand á gæsastofnum. Veiðimenn eru minntir á að óheimilt er að skjóta ófleyga fugla og hafa ber í huga að búast má við ófleygum gæsaungum á fyrstu dögum veiðitímabilsins.
Veiðimenn eru ennfremur minntir á alfriðun blesgæsar en hún hefur verið friðuð síðan 2003 og að ekki er heimilt að hefja veiðar á helsingja í Austur– og Vestur–Skaftafellssýslum fyrr en 25. september.