Hæstiréttur staðfesti fyrr í dag gæsluvarðhaldsúrskurði yfir þremur fyrrum starfsmönnum Glitnis en allir kærðu þeir úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.

Þeir sem sitja nú í gæsluvarðhaldi eru Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis og núverandi starfsmaður Íslandsbanka og Inga Rafnar Júlíusson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Glitnis og nú starfsmaður MP Banka.

Glitnir uppgjör 07.05.08
Glitnir uppgjör 07.05.08
© BIG (VB MYND/BIG)