„Það er ekki hlutverk ríkisins að standa í áhættusömum bankarekstri, heldur að tryggja eðlilega umgjörð með virku eftirliti, góðu regluverki og hóflegri skattheimtu,“ skrifar Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, í pistli sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag . Er hún að vísa til eignarhalds ríkisins á Landsbankanum og Íslandsbanka.

„Eignarhald ríkisins í bönkunum hefur meðal annars verið rökstutt með því að það dragi úr áhættu á fjármálakreppu. Það er þó mikil einföldun því ríkisbankar hafa einnig orðið gjaldþrota og hefur þá jafnan reynst lítil trygging í opinberu eignarhaldi. Það er engin tilviljun að fæstir vestrænir bankar eru í ríkiseigu.“

Ásdís segir að sú skoðun virðist algeng að opinbert eignarhald tryggi hagstæðari vaxtakjör.

„Því er þó öfugt farið. Sú stöðnun og rekstraróhagræði sem fylgir opinberu eignarhaldi eykur kostnað sem skilar sér í lakari vaxtakjörum til viðskiptavina.“

Segir Ásdís að ef ætlunin sé að bæta vaxtakjör heimila eigi að líta til skattheimtu. Bendir hún á að frá árinu 2011 hafi bankarnir greitt þrenns konar sérskatta samfara öðrum almennum sköttum og þó að slík skattheimta þekkist víða sé hún átta sinnum meiri að meðaltali á Íslandi. Þannig nemi tekjur ríkissjóðs af sérsköttum bankanna um 15 milljörðum króna á ári. Segir hún að þessi fjármunir séu notaðir til að fjármagna almenn útgjöld ríkisins enda kostnaður vegna fjármálahrunsins löngu greiddur.

Ásdís segir bagalegt að nú hafi verið fallið frá áformaðri lækkun bankaskatts. Sú ákvörðun bitni á heimilum og fyrirtækjum sem fyrir vikið fái lægri innlánsvexti og/eða greiði hærri útlánsvexti.

„Betur færi á því að draga úr ríkisútgjöldum en að láta almenning áfram bera byrðarnar. Nægar verða áskoranir heimila í þeim þrengingum sem framundan eru. Þess utan fer afkoma bankanna hratt versnandi og mun íþyngjandi skattheimta rýra virði þeirra ríkisbanka sem komnir eru í sölumeðferð. Aðkallandi er að draga úr sértækri skattheimtu, frestun á lækkun bankaskatts gæti ekki komið á verri tíma,“ skrifar Ásdís.

FRÁ VIÐSKIPTABLAÐINU: Fyrir mistök var þessi pistill merktur Erlu Skúladóttur í prentaðri útgáfu af Viðskiptablaðinu, sem kom út í morgun. Hið rétta er að pistillinn er skrifaður af Ásdísi Kristjánsdóttur, forstöðumanni efnahagssviðs SA. Beðist er velvirðingar á mistökunum.