Samþykki félagsmenn þriggja stéttarfélaga sem starfa hjá Isavia verkfallsboðun sem nú er í undirbúningi gæti það valdið mikilli truflun á millilanda- og innanlandsflugi á flugvöllum um allt land. Þetta segir Kristján Jóhannsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, í samtali við Morgunblaðið .

Þessi félög eru auk FFR, SFR og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Kjaraviðræður vegna starfsmannanna hjá Isavia, sem eru meðal annars öryggisverðir á Keflavíkurflugvelli og starfsmenn í björgunar og viðbragðsþjónustu á flugvöllum um land land, eru sagðar komnar í algjöran hnút. Hafa samninganefndir félaganna lagt til að efnt verði tið atkvæðagreiðslu um boðun aðgerða sem hefst á morgun. Niðurstöður munu liggja fyrir 3. apríl.