„Að ráðherra þiggi fjárhagslegan greiða úr hendi óskyldra aðila vegna persónulegra vandamála þarf ekki að vera spilling. Að ráðherra noti stöðu sína til að greiða fyrir viðskiptahagsmunum fyrirtækis og eiganda þess í útlöndum þarf heldur ekki að vera spilling. En ef sá sem fyrirgreiðslu ráðherrans naut er sá hinn sami og leysti úr persónulegum fjárhagsvanda hans er um að ræða eins kristaltæra pólitíska spillingu og hún getur orðið. Sú framganga gæti raunar tilheyrt dæmasafni í handbók um pólitískt siðleysi.“

Þetta segir Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, í aðsendri grein í Fréttablaðinu sem kom út í morgun en þar skrifar hann um tengsl Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra við Orku Energy sem fjallað hefur verið um að undanförnu.

„Á Vesturlöndum víkur slíkur ráðherra“

Páll segir í greininni að ráðherra geti ekki notað stöðu sína sem slíkur til að greiða fyrir viðskiptahagsmunum einstaklings eða fyrirtækis sem skömmu áður hafi rétt honum fjárhagslega og persónulega hjálparhönd. „Þetta hlýtur að vera öllum ljóst, jafnvel á Íslandi. Á Vesturlöndum víkur slíkur ráðherra,“ skrifar Páll.

Segir hann að allt annað sem hengt hafi verið á málið í umræðu síðustu daga séu aukaatriði og utan við meginefni þess. Eftir standi hin pólitíska spilling ein og hrein.

„Fráleitust er staðhæfingin um að eldri atbeini annarra ráðherra fyrir þetta sama fyrirtæki sé sama eðlis. Það er hann ekki. Í hann vantar andlagið; þeir ráðherrar fengu ekkert í staðinn, eftir því sem best er vitað. Í því felst eðlismunurinn,“ segir Páll að lokum.