Stjórn Arion banka hefur samþykkt breytt kaupaukakerfi fyrir starfsfólk Arion banka sem gildir fyrir árið 2021, að því er kemur fram í tilkynningu frá bankanum . „Breytingarnar fela í sér að nú verður allt starfsfólk Arion banka, að starfsfólki eftirlitseininga undanskildu, hluti af kerfinu og getur fengið allt að 10% af föstum árslaunum ársins 2021 í kaupauka þegar ársreikningur bankans fyrir árið 2021 liggur fyrir, að því gefnu að markmiðum kerfisins hafi verið náð. Þeir stjórnendur og það starfsfólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bankans mun geta fengið allt að 25% af föstum árslaunum í kaupaukagreiðslu, en þá í formi hlutabréfa í bankanum sem verða ekki laus til ráðstöfunar fyrr en að þremur árum liðnum,“ segir í tilkynningunni.

Mælikvarði sem sker úr um hvort greiddur verður kaupauki fyrir árið 2021, að hluta eða öllu leyti, sé arðsemi bankans á árinu 2021 og að hún sé hærri en vegið meðaltal arðsemi helstu keppinauta bankans: Íslandsbanka, Landsbanka og Kviku. Náist umrætt markmið ekki, verði ekki greiddur út kaupauki. Heildarfjárhæðin sem veitt verði til kaupaukagreiðslna verði þó aldrei hærri en sem nemur arðsemi bankans umfram vegið meðaltal arðsemi samkeppnisaðila.

Jafnframt er tekið fram að kerfið sé að fullu í samræmi við reglur FME um kaupaukagreiðslur starfsfólks fjármálafyrirtækja og starfskjarastefnu bankans sem samþykkt var á hluthafafundi. Áður hafi stjórn bankans samþykkt að engar kaupaukagreiðslur yrðu greiddar út vegna ársins 2020.

„Við mat á upphæð kaupaukagreiðslna vegna ársins 2021 verður horft til fjölmargra þátta eins og t.d. arðsemi bankans og einstakra sviða, kostnaðarhlutfalls, meðmælaeinkunna starfsfólks, lögfylgni, þekkingar á viðskiptavinum (KYC/AML) og fjölda þjónustuþátta sem viðskiptavinir nýta sér,“ segir í tilkynningu bankans.

Loks segir að starfskjarastefna bankans sé lögð fyrir aðalfund á hverju ári. Stjórn bankans muni árlega endurmeta kaupaukakerfið og þau markmið sem þar ráði mestu að fenginni heimild í starfskjarastefnu.