Nýverið hlaut Gagarín heiðursverðlaun á vegum SEGD í Chicago fyrir gagnvirk sýningaratriði í sýningunni Eldheimar í Vestmannaeyjum sem fjallar um eldgosið í Heimaey árið 1973, en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir að SEGD (The Society for Experential Graphic Design) samanstandi af 1.700 félagsmönnum frá um tuttugu löndum og séu þverfagleg alþjóðasamtök sýningahönnuða, arkitekta, grafískra hönnuða, markaðsfólks og kennara. Alls tóku 336 aðilar þátt í samkeppninni í ár og hlutu þar af sex heiðursverðlaun.

Eldheimasýningin er staðsett í nýju húsnæði í hlíðum Eldfells í Vestmannaeyjum. Markmið sýningarinnar er að fræða gesti með því að gera þá virka þátttakendur í sýningunni. Sýningargestirnir gerast könnuðir sem búa til sína eigin frásagnarleið í gegnum sýninguna með því að "grafa upp" upplýsingar, finna „týnda“ muni og afhjúpa gamlar minningar. Sýningarhönnuður sýningarinnar var Axel Hallkell Jóhannesson.