Til skoðunar er nú að setja upp gagnaver í Korputorgi, en eigandi hússins, SMI Real Estate Group, hefur fengið breska fyrirtækið GVA Connect til að kynna verkefnið fyrir hugsanlegum erlendum viðskiptavinum.

Nafnið Titan Tech Park er notað um verkefnið. Lögð hefur verið inn beiðni um breytingu á deiliskipulagi Korputorgs og samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er líklegt að hún verði afgreidd á næstu vikum.

„Þetta er bara á skoðunarstigi hjá okkur og ekki langt komið,“ segir Davíð F. Albertsson, framkvæmdastjóri SMI. Í Korputorgi eru nú laus pláss sem hægt væri að nota undir gagnaver.