Skilanefnd gamla Glitnis fundaði í dag með fulltrúum stærstu lánadrottna bankans.
Í fréttatilkynningu frá bankanum segir að aðilar hefi verið sammála um að fundurinn hefði verið bæði upplýsandi og gagnlegur og umræður og tillögur uppbyggilegar.
Ennfremur hafi umræður leitt í ljós að hlutaðeigandi aðilar líti svo á að langtímahagsmunir þeirra fari saman. Skilanefndin lýsti ánægju sinni með útkomu fundarins.