Neytendur verða á þessu ári af 104 tonnum af tollfrjálsum ostum frá Evrópusambandinu vegna breytinga Alþingis á frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um innflutning svokallaðra sérosta. Þetta kemur fram á vef Félags atvinnurekenda.

Þingið samþykkti í nótt breytingartillögu meirihluta ríkisstjórnarflokkanna í atvinnuveganefnd við frumvarpið, sem fellir niður meginhluta þess og hefur af neytendum þær hagsbætur, sem í því áttu að felast og samkomulag var um við samþykkt búvörusamninganna árið 2016, segir í tilkynningu frá félaginu.

Félagið gagnrýnir harðlega þessa þjónkun ríkisstjórnarmeirihlutans við hagsmuni innlendra framleiðenda búvara.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir þessa afgreiðslu Alþingis harðlega. „Við samþykkt búvörusamninganna var lagt til að hraða innleiðingu sérostakvótans til að vega upp á móti miklum tollahækkunum á mjólkurvörum, þar á meðal á ostum, sem ríkið samdi um við bændur. Nú hafa þær tollahækkanir verið í gildi í eitt og hálft ár, en gildistöku tollasamningsins við ESB seinkaði hins vegar til 1. maí síðastliðins. Þegar af þeim ástæðum hallar á neytendur og innflytjendur osta. Í stað þess að lagfæra það klúður sem varð í lagasetningunni á sínum tíma, ákveða fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna nú að rjúfa sáttina og ganga þannig freklega gegn hagsmunum og réttmætum væntingum jafnt innflutningsfyrirtækja og neytenda,“ segir Ólafur.

Ólafur bendir á að tollkvóta fyrir sérosta er ekki úthlutað með uppboði eins og öðrum tollkvótum, heldur með hlutkesti. „Það þýðir að hægt er að selja þessa osta á mun lægra verði en ella af því að á þá leggst ekkert útboðsgjald. Meira úrval og lægra verð í ostaborðinu er auðvitað eitur í beinum hagsmunaaðila í landbúnaði. Því miður láta fulltrúar stjórnarflokkanna hagsmuni þeirra ganga framar hagsmunum innflytjenda og neytenda.“

Tilkynninguna í heild sinni má nálgast hér .