Samskip hafa breytt nafninu á gámaflutningafyrirtækinu Samskip Multimodal Container Logistics BV í Samskip Multimodal BV. Engar breytingar verða á starfsemi félagsins eða merki Samskipa, enda fyrst og fremst verið að stytta enska heitið til þægindaauka fyrir viðskiptavini, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þar segir m.a. að með nafnbreytingunni séverið að undirstrika sterka stöðu Samskipa á alþjóðmarkaði sem fjölþátta flutningsfyrirtækis. Gámaflutningafyrirtækið í Evrópu hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum, bæði með kaupum á öðrum félögum og innri vexti.

Flutningsnet Samskip Multimodal nær um alla Evrópu, Eystrasaltslöndin, Rússland og Mið-Asíu.