Michael Morley, framkvæmdastjóri hjá Kaupthing Singer and Friedlander í Bretlandi hefur sagt upp störfum af persónulegum ástæðum.

Þetta kemur fram á vef Wealth bulletin í dag.

Morley var ráðinn framkvæmdastjóri yfir  Kaupthing Wealth sjóðnum á síðasta ári. Við starfi hans tekur Lain Steward hefur að sögn Wealth bulletin starfað hjá Singer and Friedlander frá árinu 2000 en árið 2005 sameinaðist bankinn Kaupþing og til varð Kaupthing Singer and Friedlander.

Morley er að sögn Wealth bulletin gamalreyndur á þessu sviði. Hann var áður framkvæmdastjóri og yfirmaður alþjóðlegrar einkabankaþjónustu Barclays Wealth en þar áður var hann yfirmaður einkabankaþjónustu Merrill Lynch.