Gámaþjónustan, Gámaþjónusta Norðurlands, Efnamóttakan og Hafnarbakki skipta um nafn í dag og munu héðan í frá verða Terra. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Terra er latneskt heiti jarðargyðjunnar og eitt af nöfnum plánetunnar sem er heimkynni okkar allra og á vel við, enda snýr allt okkar starf að bættri umgengni við jörðina.

Nýtt merki félagsins byggir á hringformi sem vísar til jarðarinnar, en einnig birtist í merkinu spírað fræ, tákn sjálfbærni og endurnýjunar til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að Terra skilgreini sig sem fyrirtæki í umhverfisþjónustu, sem bjóði upp á lausnir til söfnunar og flokkunar á úrgangi og endurvinnsluefnum, og sjái um að koma þessum efnum í réttan farveg. Terra starfi um land allt og vinni að því með viðskiptavinum félagsins að flokka sem mest og hvetji jafnframt til minni notkunar á umbúðum og efnum sem þarfnist sérstakrar meðhöndlunar. Markmið Terra sé að skilja ekkert eftir.