Fyrsti þátturinn í fjórðu þáttaröðinni af Game of Thrones verður frumsýndur vestanhafs þann 6. apríl næstkomandi.  Frá þessu er greint á vefnum Deadline.com.

Eins og fram hefur komið var hluti af þáttaröðinni tekinn upp á Íslandi. Upptökur fóru fram á Þingvöllum í sumar. Þrjár af fjórum þáttaröðum hafa verið teknar upp að hluta hér á landi.

Eftir því sem VB kemst næst verður fjórða þáttaröðin af Game of Thrones sýnd á Stöð 2 líkt og þrjár hinar fyrri.