„Þetta gekk svo vel hjá mér í upphafi að ég ákvað að setja svolítið af eigin fé inn á markaðinn og elta árangur minn á hlutabref.is. Það gekk vonum framar,“ sagði Baltasar Kormákur í samtali við DV í október 2006, en hann sigraði með yfirburðum í annarri umferð hlutabréfaleiks sem DV stóð fyrir ásamt vefsíðunni hlutabref.is.

Náði Baltasar tæplega 18% ávöxtun á þessu mánaðar- tímabili. Verðlaunaféð, 25.000 krónur sem Sportbar.is á Hverfisgötu borgaði, lét Baltasar renna til Barnaspítala hringsins.

Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu 31. október árið 2013. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér .