Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, stendur í ströngu þessa dagana eins og aðrir forsvarsmenn heilbrigðiskerfisins, en útlit er fyrir að til verkfalla komi hjá heilbrigðisstarfsmönnum.

Öllu léttara var yfir honum í desember 1995 þegar hann var viðstaddur opnun ljósmyndaversins Auroru ásamt þeim Arnbjörgu Finnbogadóttur, Ólöfu Björnsdóttur og Guðnýju Maríu Hreiðarsdóttur. Myndin birtist í Morgunblaðinu.