Tvíburarnir Magnús og Páll Harðarsynir, sem nú gegna störfum aðstoðarforstjóra íslensku kauphallarinnar og for­stjóra hennar, kynntu sér störf blaðamanna á Vísi þegar þeir voru í 9. bekk í Hlíðaskóla árið 1981.

Á myndinni sem birtist í Vísi þann 9. mars 1981 glíma þeir ásamt Gunnari Traustasyni við þýðingu á grein úr bresku blaði.