Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er sem kunnugt er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Myndin hér að ofan birtist í dagblaðinu Degi þann 1. desember 1987 en nokkrum dögum áður höfðu staðið yfir tökur á unglingaþættinum Annir og appelsínur.

Það voru nemendur framhaldsskólanna sem lögðu fram efni í þættina og hér sést framhaldsskólaneminn Gunnar Bragi, þá 19 ára gamall, á hestbaki við tökur á þáttunum. Ásamt Gunnari Braga eru á myndinni Eiríkur Guðmundsson, umsjónarmaður þáttanna, og Ingibjörg Friðriksdóttir. Gunnar lauk stúdentsprófi frá FNV tveimur árum síðar.

Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu 20. júní árið 2013. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér .