Vorið 1987 hlaut Jón Gnarr bæði fyrstu og önnur verðlaun í ljóðasamkeppni Glætunnar, en sigurljóðið hét Speglar. Af þessu tilefni var tekið viðtal við Jón í Þjóðviljanum, sem birtist 17. maí 1987 og vakti það mikla athygli blaðamanns hve vel fór á með Jóni og köttum hans.