Birgir Jakobsson, verðandi landlæknir, þótti liðtækur körfuboltaspilari á sínum yngri árum og lék m.a. með íslenska landsliðinu. Hér á landi spilaði Birgir með ÍR og á þessari mynd má sjá hann kljást við Þjóðverjann Norbert Thimm í leik ÍR gegn Real Madrid í Evrópuleik. Þrátt fyrir að berjast eins og ljón töpuðu ÍR-ingar fyrir spænska liðinu 117-67.