Björn Leifsson, eigandi World Class, hefur bæst í eigendahóp DV í aðdraganda hlutafafundar félagsins á föstudaginn.

Björn hefur oft kvartað undan fréttaflutningi DV undanfarin misseri og er því gert ráð fyrir að hann muni vilja koma núverandi ritstjóra frá.

Sambúð Björns og DV hefur þó ekki alltaf verið bitur, því árið 2002 birtist þessi mynd í DV, en þá hafði Hjördís Alda Hreiðarsdóttir óskað eftir líkamsræktarkorti í spurningu dagsins í blaðinu. Björn ákvað að láta þessa ósk rætast.