Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri mjólkurbúsins Kú, hefur verið í fréttum undanfarið vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um að Mjólkursamsalan hefði brotið gegn Kú og Mjólku í viðskiptaháttum sínum.

Ólafur var áður framkvæmdastjóri Mjólku, en um síðustu aldamót var hann sölustjóri Osta- og smjörsölunnar. Þegar þessi mynd var tekin hafði Ostaskólinn, fræðsluefni fyrir starfsfólk matvöruverslana, verið gefinn út á ný.