Þessi mynd birtist í tímaritinu Frjáls verslun 1. apríl árið 1999. Þar var fjallað um tölvufyrirtækið OZ, sem þá var níu ára gamalt, undir fyrirsögninni „Ætlum alla leið“. Frá hægri: Guðjón Már Guðjónsson stjórnarformaður, Joanne Koo, sölu- og markaðsstjóri, og Kjartan Emilsson, rannsókna- og þróunarstjóri. Aftari röð frá hægri: Jón L. Árnason fjármálastjóri, Skúli Mogensen forstjóri, Tómas Gíslason, framkvæmdastjóri hönnunarsviðs, og Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs.
Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu þann 23. ágúst 2012.