Sigrún Magnúsdóttir, nýskipaður umhverfisráðherra, er enginn nýgræðingur í pólitík. Í sveitarstjórnarkosningunum 1990 skipaði hún fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hér sést hún ásamt þeim Áslaugu Brynjólfsdóttur og Ósk Aradóttur, sem voru á listanum með henni. Myndin var tekin í kosningaskrifstofu flokksins og birtist í Tímanum þann 21. apríl 1990.