Í febrúar árið 2000 frumsýndi Ríkissjónvarpið sjónvarpsmyndina Úr öskunni í eldinn, en myndin var gerð eftir handriti Kristófers Dignusar og var í leikstjórn Óskars Jónassonar. Þeir félagar áttu svo síðar báðir eftir að leikstýra áramótaskaupum, Óskar árin 2001 og 2002 og Kristófer nú síðast árið 2013.

Myndin af þeim birtist í Morgunblaðinu 6. febrúar árið 2000.

Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu 9. janúar 2014. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér.