Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn, ásamt tíu öðrum aðilum, keypti 74% hlutafjár í Lýsi sumarið 1998. Eignarhaldsfélagið keypti um 34% hlut fyrir 60 milljónir króna og varð þá stærsti einstaki hluthafinn. Myndin hér að ofan birtist í viðskiptablaði Morgunblaðsins 2. júlí 1998. Þar eru saman komnir þeir Baldur Hjaltason, þá forstjóri Lýsis, og Gylfi Arnbjörnsson, þá framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn en núverandi forseti Alþýðusambands Íslands.
Gylfi hefur löngum verið þekktur fyrir myndarlegt skegg sitt en eins og sjá má á myndinni hér að ofan er hann skegglaus — enda hásumar. Gylfi rakar skegg sitt iðulega á vorin og er skegglaus á sumrin.