Það fór vel á með helstu stjórnendum Og Vodafone og fjarskiptafélaginu Kall í Færeyjum þegar þeir síðarnefndu komu til Íslands sumarið 2005. Og Vodafone átti þá stærstan hluta í Kall.

Hérna sitja saman þau Gestur G. Gestsson, þá framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Og Vodafone (nú forstjóri Advania), Viðar Þorkelsson, þá aðstoðarforstjóri Og Vodafone (nú forstjóri Valitor), Anna Huld Óskarsdóttir, þá framkvæmdastjóri þjónustusviðs Og Vodafone (nú forstöðumaður söluvers Wow air), Martin Pauli Jacobsen, frá Kall í Færeyjum, Askham Bjarnason, forstjóri fjarskiptafélagsins Kall í Færeyjum, og Eiríkur S. Jóhannsson, þá forstjóri Dagsbrúnar sem þá var móðurfélag Og Vodafone. Myndina tók Geir Ólafsson og hún birtist í Frjálsri verslun í júlí 2005.