Ingi Björn Albertsson, þjálfari FH, var óánægður með 1-1 jafntefli við KR vorið 1986, en í umfjöllun DV frá þeim tíma kemur ekki fram hvort KR-ingar hafi gengið ánægðir af velli. Á myndinni má sjá Viðar Halldórsson koma í veg fyrir að KR-ingum tækist að skora.

Fyrir aftan annan FH-ing má hins vegar sjá KR-inginn þáverandi Willum Þór Þórsson, sem „vonast greinilega til þess að Viðari mistakist spyrnan,“ eins og það er orðað í frétt DV. Willum Þór situr nú á þingi fyrir Framsóknarflokkinn.