Vorið 1976 útskrifaði framhaldsdeild Samvinnuskólans stúdenta í annað sinn og voru þeir sjö talsins. Meðal þeirra var Þórólfur Gíslason, frá Reyðarfirði, en hann átti síðar eftir að verða áhrifamaður í íslensku athafnalífi sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga. Myndin birtist í Samvinnunni í júlí 1976.