Kröfuhafar búlgarska símafyrirtækisins Vivacom hafa ákveðið að selja fyrirtækið til búlgarska bankans CCBank og fjármálafyrirtækisins VTB Capital. VTB er dótturfyrirtæki rússneska bankans Vneshtorgbank. Vivacom, sem áður hét BTC, hefur verið í höndum kröfuhafa síðan 2010 eftir að fyrri eigandi reyndist ekki gjaldfær fyrir þeim 1,65 milljörðum evra sem félagið skuldar.

BTC var á árunum 2005 til 2007 í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og innleysti Novator, félag Björgólfs, um sextíu milljarða króna hagnað við sölu þess. Fyrr á þessu ári var Vivacom til sölu og var Björgólfur meðal þeirra sem lögðu inn tilboð.

Samkvæmt búlgarska blaðinu The Sofia Globe munu lánardrottnar þurfa að afskrifa rúman milljarð evram en bankarnir tveir ætla að selja meirihlutaeign sína í símafélaginu að lokinni endurskipulagningu.