Íslandsbanki auglýsti í dag til sölu fasteignina Borgartún 18, en þar voru áður höfuðstöðvar Byrs sparisjóðs. Í auglýsingunni kemur fram að eignin er á þremur hæðum auk kjallara og er 2.800 fermetrar að stærð.

Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka hefur auglýsingin vakið töluverða athygli og hafa margir hringt inn og spurst fyrir um eignina, sem verður til sýningar dagana 24. og 29 apríl næstkomandi.

Fasteignamatið á eigninni er 432 milljónir króna en Íslandsbanki vildi hins vegar ekkert gefa upp um verðhugmyndir bankans.