Gamli Glitnir og gamli Kaupþing munu sækja um greiðslustöðvun í næstu viku.

Þetta kom fram í fréttum stöðvar 2 nú í kvöld. Fyrr í dag sagði Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins í Markaðnum með Birni Inga Hrafnssyni, að tveir gömlu bankanna myndu sækja um greiðslustöðvun í næstu viku. Þannig fengist tími til þess að vinna úr eignum bankanna og koma þeim í verð.