Stjórn Landsbanka Íslands hf. (skilanefnd) hefur farið þess á leit við Kauphöll Íslands hf. að skráð hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. verði tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar og er vísað til inngrips FME í rekstur bankans í síðustu viku.