ALMC hf. (áður Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki) greiddi í dag Seðlabanka Íslands 46 milljóna evra afborgun af veðtryggðu láni. Endurgreiðslan kemur í kjölfarið á sölu á fasteigninni sem hýsir verslunina Illum í Kaupmannahöfn. Sú sala markar lokaskrefið í söluferli eignar ALMC í verslununum Magasin og Illum, en eignin hafði verið veðsett Seðlabankanum.

Frá því í mars 2009 hefur ALMC, í framhaldi af sölu eigna, endurgreitt Seðlabanka Íslands jafnvirði ríflega 450 milljóna evra, vegna veðtryggðra lánveitinga, en þar af voru um tveir þriðju hlutar í erlendri mynt. ALMC hefur þar með greitt að fullu lán sín hjá Seðlabankanum, án þess að Seðlabankinn hafi mátt þola af þeim útlánatap eða afskriftir.