Fjármálafyrirtækið GAMMA verður aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands til 2014. Nýverið var undirritaður samningur þess efnis. Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA, og Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands undirrituðu samstarfssamninginn.

,,Það er okkur hjá GAMMA sérstakt ánægjuefni að styðja við starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstu 3 árin. Metnaður og hæfileikar hljómsveitarinnar er eitthvað sem Íslendingar allir geta verið stoltir af og við hjá GAMMA erum sérlega ánægðir með að fá að tengjast," segir Gísli í tilkynningu um samninginn.

,,Áhugi Íslendinga á tónlist er mikill og Sinfóníuhljómsveit Íslands gegnir lykilhlutverki í að mæta þeim vaxandi áhuga. Stuðningur GAMMA við Sinfóníuhljómsveitina er mikilvægur og eflir frekari uppbyggingu á starfi okkar," segir Sigurður.