GAMMA hefur flutt starfsemi sína á Garðastræti 37, en fyrirtækið hefur starfað í 5 ár á Klapparstíg 29. Nýja húsnæðið er í eigu GAMMA og er stærra húsnæði en það sem fyrirtækið var í. Húsið hýsti áður auglýsingastofuna Fíton.

Fjármálafyrirtækið GAMMA er með um 45 milljarða í sjóðastýringu fyrir hundruði viðskiptavina þar á meðal lífeyrissjóði, tryggingafélög, eignastýringar, bankastofnanir, erlenda aðila og efnameiri einstaklinga.

Einnig sinnir GAMMA ráðgjöf og hefur á undanförnum árum verið ráðgefandi Alþingi, ráðuneytum og öðrum opinberum aðilum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum, Landsvirkjun og mörgum fleirum. Hjá GAMMA og tengdum félögum starfa 22 starfsmenn.