GAMMA Capital Management hf. hefur gert sátt við Fjármálaeftirlitið (FME) um greiðslu sektar vegna fjárfestinga fjárfestingarsjóða í þremur einkahlutafélögum.

Ágreiningur var uppi við FME er laut að túlkun eftirlitsins á því hvort fjárfestingarsjóðum væri heimilt að fjárfesta í einkahlutafélögum. Sjóðir á vegum GAMMA fjárfestu í Skeljungi (í gegnum eignarhaldsfélag sem var í formi einkahlutafélags) og nýsköpunarfyrirtækjunum Atmo Select ehf. og Kerecis ehf. Fjárfestingarnar námu að meðaltali á bilinu 0,44% til 2,9% af heildareignum viðkomandi sjóða.

Ekki bannað í lögum

Í lögum um fjárfestingarsjóði er ekki lagt bann við fjárfestingum í einkahlutafélögum. FME hefur hins vegar túlkað lögin þannig að fjárfestingar í einkahlutafélögum séu óheimilar en fjárfestingar í hlutafélögum heimilar.

GAMMA hefur mótmælt þessari túlkun og telur að það sé mjög hamlandi fyrir atvinnulífið að sjóðir sem hafa heimildir til að fjárfesta í fyrirtækjum fyrir sparnað landsmanna geti aðeins fjárfest í hlutafélögum en ekki einkahlutafélögum, enda ræður tilviljun því oft hvort félagaformið er valið.

Þau þrjú félög sem sjóðir GAMMA fjárfestu í hefðu allt eins getað verið í formi hlutafélaga og rekstur þeirra ber öll einkenni hlutafélaga, en um er að ræða félög í fullum rekstri með fjölda hluthafa.

Sjóðir GAMMA eru ekki einu sjóðirnir sem fjárfest hafa í einkahlutafélögum. Fyrr í sumar gerði annað félag sátt við FME um greiðslu sektar vegna samskonar tilviks. Með vísan til þess fordæmis var það mat GAMMA að æskilegt væri að ljúka málinu með sátt við Fjármálaeftirlitið að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Segja ákvörðun FME of takmarkandi

„Þessi fordæmisgefandi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins felur í sér of víðtækar takmarkanir á heimildum sjóða til fjárfestinga,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

„Hún getur þar af leiðandi gengið gegn hagsmunum sjóðsfélaga sem eru samansettir af almenningi í landinu, stofnanafjárfestum og fyrirtækjum. Takmarkanir af þessu tagi hamla að auki fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum. Því er Fjármálaeftirlitið hvatt til að endurskoða þessa túlkun sína á lögunum.“