Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,52% í dag og stendur í 216,39 stigum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,57% og sá óverðtryggði um 0,40%. Frá áramótum hefur verðtryggði hluti GAMMA vísitölunnar hækkað um 11,15%, en sá óverðtryggði hefur lækkað um 1,26%.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,30% í 62,7 milljóna króna viðskiptum í dag. Gengi bréfa BankNordik hækkaði um 1,35%, en Icelandair lækkaði um 1,05%.