Útgáfuáætlun Lánamála Ríkisins kom út á föstudaginn og er áformað að fjármagna ríkissjóð með 170 milljarða króna útgáfu ríkisskuldabréfa. Mestur hluti útgáfu ríkisskuldabréfa fer í endurgreiðslur á Ríkisbréfum sem eru á gjalddaga í mars og desember á þessu ári, samtals 130 milljarða.
Í fréttabréfi GAM Management (GAMMA) segir að stærsta fréttin í tilkynningunni sé staðfesting á því að gefinn verður út nýr verðtryggður skuldabréfaflokkur á öðrum ársfjórðungi og er gert ráð fyrir að selja allt að 50 milljarða króna á árinu og frekari stækkun ráðgerð næsta ár.
„Það er ánægjulegt að sjá að flokkurinn verður byggður upp á sama hátt og óverðtryggðu ríkisbréfin, þ.e. vaxtagreiðslubréf, nema að verðtryggingin bætist við; þetta er til samræmis við erlenda skuldabréfamarkaði,“ segir í fréttabréfi GAMMA.
„Einföldun skuldabréfamarkaðarins er mikilvæg og mjög jákvætt að sjá þróun í átt til samræmingar. Við vonumst til þess að við útreikning á daglegri verðtryggingu verði notast við nákvæmlega sömu aðferð og Íbúðabréfin gera þ.e. línuleg brúun milli mánaðargilda vísitölunnar.“
Í fréttabréfi GAMMA segir að þessi ákvörðun komi ekki á óvart. Mikil eftirspurn hafi verið eftir verðtryggðum bréfum undanfarnar vikur og þannig hafi t.a.m. GAMMAi: Verðtryggt hækkað um 13,3% síðastliðna 6 mánuði á móti „einungis“ 5,9% hækkun GAMMAxi: Óverðtryggt – en hér er um skuldabréfavísitölur GAMMA að ræða.
„Rökrétt er fyrir ríkissjóð að skulda verðtryggt vegna tengingar verðbólgu við tekjur ríkissjóðs sem og aðhaldið sem verðtryggð útgáfa á að veita stjórnvöldum,“ segir í fréttabréfi GAMMA.
„Þetta gæti mögulega verið fyrsta skrefið til þess að ríkissjóður fari að gefa út verðtryggt í auknari mæli á móti því að Íbúðalánasjóður taki upp óverðtryggða útgáfu.“
Þá segir GAMMA að hægt sé að verðleggja núna löng óverðtryggð vaxtagreiðslubréf út frá vaxtakúrfu ríkisbréfa og samkvæmt útgáfuáætlun á að halda áfram útgáfu og uppbyggingu á Ríkisbréfi 2025, sem sé nú þegar orðinn 56 milljarðar króna að stærð.
„Mjög áhugavert væri að sjá óverðtryggð húsnæðislán í boði til almennings með föstum vöxtum og teljum við að grundvöllur sé að myndast fyrir þeirri útgáfu hjá Íbúðalánasjóði,“ segir í fréttabréfi GAMMA.