Skuldabréfabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,27% í dag og endaði í 246,3 stigum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,32% og sá óverðtryggði um 0,15%.

Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 2,79 milljörðum króna og skiptist nokkuð jafnt á milli verðtryggðra og óverðtryggðra bréfa, en veltan með þau síðarnefndu var þó eilítið meiri. Frá áramótum hefur GAMMA vísitalan hækkað um 1,65%.