Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,25% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,35% og sá óverðtryggði um 0,01%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 14,06 milljörðum króna, en þar af var velta með verðtryggð bréf um 8,5 milljarðar.

Það sem af er ári hefur vísitalan sjálf hækkað um 5,15%, verðtryggði hluti vísitölunnar hefur hækkað um 6,06% og sá óverðtryggði um 3,22%.