Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,27% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,29% og sá óverðtryggði um 0,21%. Frá áramótum hefur GAMMA vísitalan hækkað um 2,13%. Verðtryggði hluti vísitölunnar hefur hækkað um 2,18% og sá óverðtryggði um 1,96%.

Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 10,8 milljörðum króna. Viðskipti með verðtryggð bréf námu 4,3 milljörðum og viðskipti með óverðtryggð bréf námu 6,5 milljörðum króna.