Rekstraraðilar Fríhafnarinnar gagnrýna nýtt lagafrumvarp Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem gerir viðskiptavinum kleift að kaupa áfengi í Fríhöfninni eftir tegundum í stað þess að vera bundin við að blanda saman sterku áfengi, léttvíni og bjór í samræmi við fimm ólíkar samsetningar. Talsmenn ÁTVR hafa einnig lýst yfir efasemdum sínum um frumvarpið og sega það ekki nægilega vel ígrundað. Þetta kemur fram á fréttavefnum turisti.is í dag.

Í greinagerð með frumvarpinu kemur fram að búast megi við að þessar nýju reglur verði til þess að sala Vínbúðanna minnki um 1 til 2 prósent og tekjur ríkisins af áfengisgjaldi dragist saman um 200 milljónir en að búist sé við að tekjur af aukinni sölu í komuversluninni muni vega upp á móti.

Hver ferðamaður getur verslað sex einingar

Núverandi fyrirkomulag býður þeim sem fara í gegnum fríhöfnina að fara eina af fimm mismunandi leiðum til þess að fullnýta þann áfengiskvóta sem hverjum farþega er sjálfvirkt úthlutaður við komuna til landsins. Þessar fimm mismunandi leiðir eru í samræmi við lögum um tollfrjáls kaup á áfengi. Í nýju frumvarpi er hinsvegar miðað einingar en hver ferðamaður getur nánar tiltekið verslað sex einingar.

Samkvæmt frumvarpinu samsvara 3 lítrar af bjór, ein 0,75 cl léttvínsflaska eða 0,25 cl af sterku áfengi (meira en 22%) þannig einni einingu hver. Hálfs lítra kippa af bjór telst því ein eining og flaska með einum lítra af sterku áfengi samsvara 4 einingum. Nái frumvarpið fram að ganga verður jafnframt gerð sú breyting að miða magn af léttvíni við hefðbundnar vínflöskur sem eru 0,75 cl en ekki 1 lítri líkt og gert er í dag.

Frumvarpið ekki nægilega vel ígrundað

Í umsögn sinni um frumvarpið segja talsmenn ÁTVR það ekki nægilega ígrundað og gera athugasemdir við að í engu sé vikið að afleiðingum þess fyrir lýðheilsu, sér í lagi þar sem það feli í sér að farþegar geti nú keypt meira af sterku áfengi en fyrr.

ISAVIA gagnrýnir jafnframt frumvarpið í umsögn sinni og segir það misskilning að áfengissala komi til með að aukast með breytingunum. Í umsögn félagsins er þannig bent á að með breytingunum skerðist ákveðnar samsetningar talsvert. En samkvæmt gögnum ISAVIA er um að ræða þær samsetningar sem flestir farþegar nýta sér.

ISAVIA leggur jafnframt til að ein eining af sterku áfengi verði 0,5 I í stað 0,25 I. Og jafnvel að hámarks kaup á sterku áfengi verði 1 líter, þannig að ekki sé hægt að ráðstafa öllum kvótanum í sterkt áfengi.