Garðar Thor Cortes söng í dag á tónleikum á Trafalgar-torgi í Lundúnum. Tónleikarnir voru haldnir til styrktar Loomba-sjóðsins, en tilgangur sjóðsins er að aðstoða börn, aðallega á Indlandi, sem misst hafa feður sína til náms.

Garðar söng þrjú lög á tónleikunum í dag. Fjöldi annarra atriða voru einnig á dagskrá, en viðburðurinn stóð í tvo tíma.

Forseti Loomba-sjóðsins er Cherie Blair, eiginkona Tony Blair fyrrum forsætisráðherra Breta.