Garðar Þorsteinn Guðgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestinga og viðskiptaþróunar hjá Tryggingamiðstöðinni. Garðar mun stýra uppbyggingu nýs sviðs fjárfestinga og viðskiptaþróunar hjá félaginu, auk þess sem hann mun stýra stefnumótun dótturfélaga TM og samþáttun rekstrar þeirra við móðurfélagið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá TM.

Garðar kemur til liðs við Tryggingamiðstöðina frá McKinsey & Company í Kaupmannahöfn, þar sem hann hefur gegnt stöðu ráðgjafa frá byrjun árs 2007.

Garðar starfaði áður hjá Íslensku verkfræðistofunni, auk þess sem hann var einn stofnenda Baggalúts efh. Garðar útskrifaðist með BSc gráðu í Rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1999, MSc gráðu í Hugbúnaðarverkfræði frá University of York árið 2001, og MBA gráðu frá IMD árið 2006.