Enginn nýliði náði betri árangri í sölu á klassískri tónlist í Bretlandi á árinu heldur en Garðar Thór Cortes. Þetta hefur fengist staðfest af fyrirtækinu sem heldur utan um bresku vinsældalistana „The Chart Company“, að því er fram kemur í tilkynningu frá útgefanda söngvarans. Samkvæmt tölum bresku vinsældalistanna náði enginn nýliði á árinu betri árangri en Garðar á Klassíska vinsældalistanum árið 2008.
Í tilkynningu vegna þessa árangurs segir að platan hans Cortes hafi komið út 16. apríl og setið í efsta sæti listans í 3 vikur í apríl og fram í maí. Það var svo Lucinao Pavarotti sem tók toppsætið af Garðari um miðjan maí. En Garðar fór svo aftur alla leið í annað sætið í ágúst þegar að salan tók aftur mikinn kipp. Í tilkynningunni er haft eftir Garðari: „Ég er mjög glaður og hrærður yfir þessu eins og öllu þessu ári. Þetta ár hefur verið alveg ótrúlegt.“
Hugsanlega tilnefndur til bresku tónlistarvarðlaunanna?
Í tilkynningunni segir að útgefendur og samstarfsfólk Garðars séu full bjartsýni og stefnt sé að útgáfu annarrar plötu í maí á næsta ári. „Við erum auðvitað hrikalega ánægð með að fá þetta staðfest. Við vissum þetta náttúrulega þar sem við höfum verið að fylgjast stíft með gangi mála á þessum lista allt árið. Það verður tilnefnd til Klassísku Brits verðlaunanna í mars og miðað við þennan árangur þá finnst mér að Garðar eigi tilkall til nýliða ársins,“ segir Einar Bárðarson samstarfsmaður Garðars í tilkynningunni.
Líkt við Pavarotti
Breska blaðið The Independent sagði að Garðar Thór væri einn fárra söngvara í heiminum sem gætu náð vinsældum Pavarottis. Einn af þeim sem blaðið nefndi í leiðinni var ítalski söngvarinn Andrea Bocelli sem dæmi. Fjöldi útvarps og sjónvarpsþátta í Bretlandi tóku í sama streng sem og aðrir prentmiðlar, að því er segir í tilkynningunni. Garðar hefur sungið víða á árinu sem nú er að líða en hann hefur meðal annarra sungið fyrir Karl Bretaprins og Camillu, sem og Tony Blair og fleiri á Bretlandi. Strax í janúar fer Garðar til Sviss að syngja á stuttu tónleikaferðalagi. Síðan hefst lokaundirbúningur á nýrri plötu sem væntanlega kemur út í maí. Eftir það er Garðar bókaður til að syngja í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Breta The Alan Titchmarsh Show þann 12. janúar en Alan hefur einu sinni áður fengið Garðar í heimsókn og í nokkrum þáttum þess utan dáðst af hæfileikum Garðars, að því er segir í tilkynningu útgefandans.