Garðabær ætlar að bjóða til sölu skuldabréf í stækkuðum skuldabréfaflokki í samstarfi við Markaði Íslandsbanka. Boðin verða til sölu skuldabréf upp á allt að 450 milljónir króna að nafnvirði bréfsins.

Fram kemur í tilkynningu að sala á skuldabréfunum fer fram 13. janúar næstkomandi. Hún er í samræmi við ákvörðun bæjarráðs Garðabæjar þann 17. desember 2013 og verður salan með útboðsfyrirkomulagi og í samstarfi við Markaði Íslandsbanka.